| |
Ég er fædd og uppalin á Akureyri. Kláraði íþróttabraut og lauk stúdentsprófi frá félags- og náttúrufræðibraut og kláraði svo ÍAK einkaþjálfarann.
Frá því ég var lítil stelpa hef ég stundað íþróttir. Fyrstu árin í grunnskóla æfði ég blak og handbolta en þegar ég var 11 ára snéri ég mér að sundi. Ég æfði með Sundfélaginu Óðni í rúm 6 ár (2000-2006) og náði þar mjög góðum árangri á sínum tíma. Keppti á mörgun Íslandsmeistaramótum og náði inn í Unglingalandsliðið árið 2004 og keppti fyrir Íslands hönd á Norðurlandameistaramóti og ýmsum alþjóðlegum mótum.
Vorið 2006 hætti ég að æfa sund en eitthvað varð ég að hafa fyrir stafni og byrjaði þá að mæta í ræktina. Þegar á leið fannst mér það ekki nógu markvisst og ákvað þá að stefna á Bikarmót í Fitness. Ég tók þátt í fyrsta skipti í nóvember 2008. Fljótlega eftir mótið ákvað ég að taka þátt í Íslandsmótinu sem haldið var í apríl 2009. Þar vann ég Íslandsmeistaratitil í unglingafitness. Að Íslandsmóti loknu breytti ég æfingunum, fór að hlaupa meira og stunda auknar þolæfingar. Nú í dag stunda ég Crossfit og hef mikinn áhuga á því.
|